Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Seltjarnarnesið er lítið og lágt
Seltjarnarnesið er lítið og lág.
Lifa þar fáir og hugsa smátt.
:,: Aldrei lita þeir sumar né sól.
Sál þeirra´ er blind einsog klerkur í stól.:,:
Konurnar skvetta úrkoppum á tún.
Karlarnir vinda segl við hún.
:,: Draga þeir marhnút í drenginn sinn.
Duus kaupir af þeim málfiskinn.:,:
Kofanir ramba þar einn og einn.
Ósköp leiðist mér þá að sjá.
:,: Prestkona fæddist í holtinu hér.
Hún giftist manni, sem hlær að mér.:,:
Já, Seltjarnarnesið er lítið og lágt.
Lifa þar fáir og hugsa smátt.
:,: Á kvöldin heyrast þar kynjahljóð.
Komið þér sælar, jómfrú góð!:,:
Þórbergur Þórðarson
