Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Sólskríkjan
Sú
rödd var svo fögur, svo hugljúf og hrein
sem hljómaði til mín úr dálitlum runni.
Hún sat þar um nætur og söng þar á grein
svo sólfögur ljóð um svo margt sem ég unni.
Og kvöld eftir kvöld hóf hún ástarljóð ein.
Ó, ef að þú vissir hve mikið hún kunni!
Hún
kvað um sitt fjölbreytta fjalldala skraut,
hve frítt er og rólegt að eiga þar heima,
hve mjúkt er í júní í ljósgrænni laut,
hve létt er þar vetrarins hörmum að gleyma
og hvað þá er indælt við ættjarðar skaut
um ástir og vonir að syngja og dreyma.
En
fjarri' er nú söngur þinn, sólskríkjan mín
og sumur þíns vinar hin fegurstu liðin.
Hann langar svo oft heim á Þórsmörk til þín,
hann þráir svo ljóðin og vornætur
friðinn.
Hann harmar í skógunum hrjósturlönd sín.
Hann hlustar sem gestur á náttgalakliðinn.
Þorsteinn Erlingsson
