Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Söngur ferðamannsins

Það er eitthvað sem sífellt mig seiðir,

burt úr solli og daglegri þröng,

upp til fjalla á lynggrónar leiðir,

þar sem lóan á bú við skógargöng.

Oft mig dreymir, í dimmunni heima,

um hinn dýrðlega öræfasal.

En er birtir um bláfjalla geima

klýf ég brattann með gönguprik og mal.

Og með sólskin á vörum og vanga

mun ég vitja' ykkar, snækrýndu fjöll,

feta syngjandi leiðina langa,

verða lúinn og finna grænan völl

þar sem frjálst er í kyrrðinni' að hvíla,

þar sem kvöldroðinn glitrandi slær

yfir tindum sem tröllauknir skýla
grænni tó þar sem fjallasmárinn grær.

Það er hingað sem hugur minn leitar.

Þegar hávaði bæjarins dvín

finn ég Ísland að heitar og heitar

þráir hjarta mitt kyrrð við fjöllin þín.

Því hvað er gull móti glitrandi fossi,

hvað er glaumur hjá öræfanótt,

þegar sunna með kvöldroðakossi

daginn kveður um sinn og allt er hljótt

 
Ólafur B. Guðmundsson