Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Stafróf ástarinnar
Hún Gunna vildi ei neitt með Nonna hafa,
og Nonni var sá klaufi að Gunna hló.
Og því
tók hann það ráð að reyna að stafa
á rósamáli það, sem innst í hugarfylgsnum bjó.
A merkir atlot þín
B merkir brosin þín,
D þú sért dásamlegt fljóð.
E elsku eldinn þinn,
F fagra faðminn þinn,
G
þinna gullnu lokka flóð
H merkir hlátraþrá,
Í ljósa íturbrá,
J merkir jáyrðin hljóð.
K merkir kossabál,
L ljúfustu leyndarmál,
M merkir mey, sem er góð.
N, O, P, Q
Þú engin er sem þú.
R, S, T, Ú,
Engin skilur stafrófið sem þú.
V merkir von og heit,
X það sem enginn veit,
Y, Z, Þ, Æ og Ö
Það myndi létta lund,
ef læsum stund og stund
allt starfófið saman, við tvö.
