Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Þú og þeir

Ég dái Dubussy.
Ég dýrka Tchaikovsky.
Og Einar Ben og Beethoven
og Gunnar Thoroddsen.

Ég tilbið Harold Lloyd.
Ég tilbið Sigmund Freud.
Og John Wayne og Mark Twain
og þig og Michael Caine.

Syngjum öll um Sókrates
sálarinnar Herkúles.
Um alla þá sem allir þrá
og allir dýrka og dá.

Ég syng um Kólumbus.
Og Sólon Islandus.
Og Mendelsohn og Paul og John
og John Paul Sigmarsson.

Syngjum öll um Sókrates
sálarinnar Herkúles.
Um alla þá sem allir þrá
og allir dýrka og dá.

Syngjum öll um Sókrates
sálarinnar Herkúles.
Um þá sem spá.
En einkum þá sem fallnir eru frá.

Sverrir Stormsker