Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Þú styrkir mig
Ég stundum er á ferð um dimma dali
Og dags og nætur veit ég ekki skil
Mig dreymir þá um allt sem auðgar lífið
Og óska þess að bráðum rofi til.
Þú styrkir mig ég stend á hæstu tindum
Þú styður mig í gegnum hverja þraut.
þú gefur þyrstum veig af lífsins lindum
Þú leiðir mig á gæfunnar minnar braut.
En stundum er ég undra ljóma vafinn
Og allt í kring er fagurt bjart og nýtt.
Ég er sem upp í æviheima hafinn
Og hugsun mín er ást og gæska þín.
