Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Vor í Vaglaskógi
Vor í Vaglaskógi
Kvöldið er okkar og vor um Vaglaskóg,
við skulum tjalda í grænum berjamó.
Leiddu mig vinur í lundinn frá í gær,
lindin þar niðar og birkihríslan grær.
Leikur í ljósum lokkum og angandi rósum,
leikur í ljósum lokkum hinn fagnandi blær.
Dagperlur glitra, um dalinn færist ró,
draumar þess rætast sem gistir Vaglaskóg.
Kveldrauðu skini á krækilyngið slær.
Kyrrðin er friðandi, mild og angurvær.
Leikur í ljósum lokkum og angandi rósum,
leikur í ljósum lokkum hinn þaggandi blær.
Kristján frá Djúpalæk
