Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Warshjawanka
Warshjawanka
Við
sem að enn eigum þrek til að þreyta
þróttmikið stríð móti skorti og neyð,
tókum við byrðum af bræðrum sem féllu
blóðgan í valinn, en ruddu oss leið.
Viðlag:
:/:Heyr,
stormurinn þýtur, stundin er komin,
stormurinn boðar oss frelsisins vor.
Æskunnar hetjur við hrynjandi söngva
hugdjarfar ganga í feðranna spor.:/:
Svo
þegar skeið vort að sköpum er runnið
skýlir oss jörðin, vor orrustuslóð.
Fáninn sem reis yfir feðranna draumi
fylkir til orrustu sigrandi þjóð.
Heyr, stormurinn………..
Ásgeir Ingvarsson
