Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Hjólasöngur
Á hjóli, hjóli, hjóli margt ég fer, á hjóli kemst ég næstum hvert sem er. Ég hjóla úti’ á plani og hliðargötunum,…
Hlíðin mín fríða
Hlíðin mín fríða hjalla meður græna, blágresið blíða, berjalautu væna, á þér ástaraugu ungu réð ég festa, blómmóðir besta. Sá ég sól…
Hlustaðu á lagið ljúfa
Hlustaðu’ á lagið ljúfa, lífgað af kærleiksyl, hrynjandi hörputóna, harmonikkunar spil. Ómar í dansins öldum einmana söngur minn, hvísla ég komdu til…
Hlustið, góðu vinir
Hlustið, góðu vinir, nú skal segja ykkur sögu, söguna um strákinn sem stundum illa lét, honum líkt var barn ei neitt í…
Hóký Póký
Við setjum hægri höndina inn, við setjum hægri höndina út, inn, út, inn, út - og hristum hana til. Við gerum hóký-póký…
Höldum gleði hátt á loft
Höldum gleði hátt á loft, helst það seður gaman. Þetta skeður ekki oft að við kveðum saman. Alþýðuvísa
Horfðu á björtu hliðarnar
Lát huggast litla barnið mitt, sjá, veröldin er ekki ill og eftir þennan dag þá kemur dagur ef til vill. Ef þú…
Hótel Jörð
Tilvera okkar er undarlegt ferðalag. Við erum gestir og hótel okkar er jörðin. Einir fara og aðrir koma í dag því alltaf…
Hrafninn flýgur um aftaninn
Hrafninn flýgur um aftaninn á daginn ekki má. Harður er rauna hagurinn, hvíldir kann ei fá. Seint flýgur krummi á kvöldin. Íslensk…
Hraun í Öxnadal
Þar sem háir hólar hálfan dalinn fylla lék í ljósi sólar, lærði hörpu að stilla, hann sem kveða kunni kvæðin ljúfu, þýðu,…
Hreðavatnsvalsinn
Úti við svalan sæinn syng ég mín ástarljóð, dýrlegum dagsins draumum í dvel ég við forna slóð. Þú varst minn æsku engill,…
Hríseyjar-Marta
Hún Hríseyjar-Marta með hárið sitt svarta var fræg fyrir kátínu, forðum á síld. Og það hressti okkur alla að heyra' hana kalla:…
Hríslan og lækurinn
Gott átt þú hrísla á grænum bala glöðum að hlýða lækjarnið. Þið megið saman aldur ala unnast og sjást og talast við.…
Hudson bay
Ég byggði mér hús við hafið og hafið sagði ókey. Hér er ég og heiti Hudson bay. Í kvöldsins hægláta húmi heyrði…
Húmar að kveldi
Húmar að kveldi, hljóðnar dagsins ys, hnígur að ægi gullið röðulblys. Vanga minn strýkur blærinn blíðri hönd, og báran kveður vögguljóð við…
Húmljóð
Nálgast nóttin kær, næturmildur blær niðar í laufi, hlýr og vær. Ég ætla’ að ganga út í kvöld í aftansólarglóð og blærinn…
Hún hring minn ber
Hún hring minn ber á hendi sér og heill úr augum skín, hún sýnir þér og sannar mér að hún sé stúlkan…
Hún systa mín litla
Hún systa mín litla á ljósgullið hár sem liðast svo mjúkt eins og ull. Hún hefur nú lifað í hálft þriðja ár…
Húrra nú ætti að vera ball
Hjartað af ánægju hlær í mér, hvenær sem vals þessi nefndur er, hoppa ég bæði á hæl og tá hringsóla reikandi til…
Húsamúsarvísa
Hér kemur Lillimann klifurmús sem kæti ber inn í sérhvert hús, en regluleg söngva og músíkmús, og meistaragítarsláttumús. Trallalalala trallalalala trallalalalalala-la-la-la! Þýð:…
