Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

Fundust: 11 textar

Ja þessi Emil

Ja, þessi Emil Hlustið, góðu vinir, nú skal segja ykkur sögu, söguna um strákinn sem stundum illa lét, honum líkt var barn…

Jarðarfarardagur

Það gerðist hér suður með sjó að Siggi á Vatnsleysu dó. :,:Og ekkjan hans Þóra var ekki að slóra til útfararveislu sig…

Játning

Enn birtist mér í draumi sem dýrlegt ævintýr, hver dagur, sem ég lifði í návist þinni. Svo morgunbjört og fögur í mínum…

Jesús er ég nefni nafnið þitt

Jesús er ég nefni nafnið þitt Jesús, er ég nefni nafnið þitt nálgast þú og blessar lífið mitt. Þú læknar sérhvert sár…

Jesús kom inn

Jesús, kom inn, Jesús, kom inn, kom inn í mitt hjarta, Jesús. Kom inn í dag, minn bættu hag, kom inn í…

Jesús Kristur og ég

Hér sit ég einn með sjálfstraustið mitt veika, á svörtum kletti’ er aldan leikur við. Á milli skýja tifar tunglið bleika og…

Joe Hill

Mig dreymdi í nótt ég sá Joe Hill, hinn sanna verkamann. „En þú ert löngu látinn, Joe?“ „Ég lifi,“ sagði hann. „Ég…

Jói útherji

Öll þið eflaust þekkið Jóa, hann var innherji hjá Val, síðan útherji hjá Kr. Hann var alveg “spinnegal”. Því knattspyrna gerði hann…

Jón er kominn heim

Ég er hýr og ég er rjóð, Jón er kominn heim. Ég er glöð og ég er góð, Jón er kominn heim…

Jón og ég

Jón og ég - við vorum eins og bræður, og áttum föður - sem var okkur kær. Ekki skorti okkur heldur mæður…

Jörðin hún snýst

Jörðin hún snýst um sjálfa sig sólarhringsferð, með þig og mig. Umhverfis sólu á ári hún fer og ávallt á leiðinni vaggar…