Skipaorusta
21. mars, 2026Frúin í Hamborg
22. mars, 2026Þennan leik þekkja nú flestir en ég læt hann samt fljóta með hér.
Til þess að leika hann þurfið þið fimm teninga og yatsy-blokk. Þið getið líka teiknað upp þessa töflu á blað eða prentað hana út.
Hver keppandi má kasta teningunum þrisvar í hverri umferð. Eftir hvert kast velur hann úr þá teninga sem hann vill halda og skilur eins marga teninga eftir á borðinu og hann vill.
Fyrir ofan miðjustrik gildir að fá sem flesta teninga með réttri tölu í hverri línu.
Til þess að fá bónus/verðlaun (50) fyrir 6 fyrstu reitina þurfið þið að fá samtals 63 út úr þeim (eða minnst 3 teninga með réttri tölu undir hverri línu fyrir ofan strik). Teljið aðeins með teninga með réttri tölu.
Eitt par eru tveir eins teningar.
Tvö pör eru tveir teningar sýna sömu tölu og einhverja aðra tölu á tvo teninga.
Þrír eins eru þrír eins teningar.
Fjórir eins eru fjórir eins teningar.
Lítil röð er 1-2-3-4-5.
Stór röð er 2-3-4-5-6.
Fullt hús er þegar viðkomandi fær sömu tölu á þrjá teninga og einhverja aðra tölu á hina tvo (3+2).
Áhætta eru sú summa sem allir teningarnir á borðinu gefa, en þessi lína er oft nýtt þegar teningarnir bjóða ekki upp á annan valkost.
Yatsy er erfiðast en þá þarf að fá sömu tölu á alla teninga. Hins vegar skiptir engu hvort það er 1 eða 6, þú færð alltaf 50 fyrir Yatsy. Í öllum öðrum tilfellum leggið þið saman punktana á öllum teningunum.
Í lokin eru tölurnar frá og með samtalsreitnum fyrir ofan bónusinn lagðar saman til að fá heildarsamtölu í lokin. Sá sem er með flest stig í lokin vinnur.
Góða skemmtun!
