Kosningar 29. maí 1982
23. apríl, 2026Til vinar
23. apríl, 2026Regn
Regnið grætur gluggum á,
gróður bætir valla.
Blómarætur þurrar þrá
þessa vætu, alla.
—
Ofan rignir æ og sí,
allt á kafi í bleytu.
Lækka hlýtur henni í
himnaríkisveitu.
—
Þurrkatíð er takmörkuð,
tæmast himins lindir.
Það er eins og góður Guð
gráti heimsins syndir.
