Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Það gefur á bátinn
Það gefur á bátinn við Grænland
og gustar við sigluna kalt.
En togarasjómanni tamast það er
að tala sem minnst um það allt.
En fugli sem flýgur í austur
er fylgt yfir hafið með þrá
og vestfirskur jökull sem heilsar við Horn
í hylling, með sólroðna brá,
segir velkominn heim, sértu velkominn heim.
Þau verma hin þögulu orð.
Sértu velkominn heim yfir hafið og heim.
Þá er hlegið við störfin um borð.
En geigþungt er brimið við Grænland
og gista það kýs ekki neinn.
Hvern varðar um draum þess og vonir og þrár
sem vakir þar hljóður og einn.
En handan við kólguna kalda
býr kona sem fagnar í nótt
og raular við bláeygan, sofandi son
og systur hans, þegjandi hljótt.
Sértu velkominn heim, sértu velkomin heim.
Að vestan er siglt gegnum ís.
Sértu velkominn heim yfir hafið og heim.
Og Hornbjarg úr djúpinu rís.
Kristján frá Djúpalæk
