Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Á hörpunnar óma
Á hörpunnar óma við hlustum í kvöld,
mín hjartkæra draumfagra meyja.
Og tunglskinið hefur sín töfrandi völd
er tónarnir síðustu deyja.
Í hillingum sjáum við sólfagra strönd,
þar svífum við tvö ein um draumfögur lönd.
Og tunglskinið hefur sín töfrandi völd
er tónarnir síðustu deyja.
Er nóttin oss býður sín litskreyttu ljós,
er leiftra um himinsins veldi,
þá gef ég þér ást mína, heiður og hrós
og hamingju á þessu kveldi.
Við dönsum og syngjum mitt seiðandi lag
uns sjáum við roða hinn komandi dag.
Og þá áttu ást mína, heiður og hrós
og hamingju frá þessu kveldi.
Theódór Einarsson
