Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Það var um nótt
Það var um nótt
Það
var um nótt, þú drapst á dyr hjá mér
og dyrnar opnuðust af sjálfu sér,
og inn þú komst og kveiktir ljós mér hjá,
ég kraup að fótum þér í hljóðri þrá.
En óskir rætast, bætist böl og stríð,
í bláma fjarlægðar sést liðin tíð,
en við oss blasir björt og fögur strönd
og bak við hana sólrík draumalönd.
Þá leiðumst við í lífsins helgidóm,
í ljúfum sporum vaxa munablóm,
og fótmál vor, hvert skref á skammri stund
þótt skiljumst hér er heit um endurfund.
