Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Af litlum neista

Oft má finna atvik smátt
sem orsök nýrra kynna.
Það markar oft þá meginátt
sem mannsins örlög þráðinn spinna.
Sígarettu hafði hann
í hendi milli fingra sinna,
en eldspýturnar eigi fann,
þær einhversstaðar varð að finna.

Ástin er eins og sinueldur.
Ástin er segulstál.
Af litlum neista verður oft mikið bál.
Ástin er eins og hvítigaldur,
sem gagntekur líkama’ og sál.
Af litlum neista verður oft mikið bál.

Brátt hann leit á bjarta mey
við borð í salnum aðeins innar.
Hann óðamála sagði ókey!
Hún er yndisfögur með rjóðar kinnar.
Hann slátt í brjósti sínu kenndi
er sá hann þessa fögru snót,
og beina leið á borðið renndi
með bros á vör og hljóp við fót.

Ástin er eins og sinueldur...

En ekki bara eld á spýtu
einan fékk hjá snótinni.
Því sjá þar mátti svart á hvítu
hvað skein frá hjartarótinni.
Nú boga amors englar spenntu,
örvahríðin óx nú fljótt.
Í hvolf og gátt þær hiklaust lentu,
já, himnahersveit brást við skjótt.

Ástin er eins og sinueldur...