Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Þakkarbæn
Þakkarbæn
Við
biðjum þig, Drottinn, að blessa þá hrjáðu.
Þú birtir oss syndugum mátt þinn á jörð.
Lát náðarsól rísa, veg þeim öllum vísa
er villir fóru leið, hafa týnt sinni hjörð.
Þú
leiðir oss, Drottinn, að lindunum hreinu.
Þú ljósið þitt kveikir við himnanna stól.
Um tíma þó syrti þá brátt aftur birtir,
þú breiðir út þinn faðm og veitir oss skjól.
Vér
flytjum þér lofgjörð, þú líknar og græðir
og léttir oss göngu í stormanna klið.
Frá ánauð og helsi gef hjörð þinni frelsi.
Þín hjálp er jafnan nær! Ó, Guð veit oss frið.
Óskar Ingimarsson
