Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Anna litla
Anna litla, létt á fæti
– Eins og gengur, eins og gengur –
Anna litla, létt á fæti,
lagði' af stað í berjamó.
Fjórir ungir, sætir sveinar,
– Eins og gengur, eins og gengur –
Fjórir ungir, sætir sveinar
sátu þar á grænni tó.
Einn af þeim var ósköp feiminn,
– Eins og gengur, eins og gengur –
Einn af þeim var óskp feiminn,
Önnu litlu kyssti þó.
Annar, talsvert áræðnari,
– Eins og gengur, eins og gengur –
Annar, talsvert áræðnari,
af Önnu skýlu' og svuntu dró.
Sá þriðji’ enn meiri hugdirfð hafði
– Eins og gengur, eins og gengur –
Sá þriðji enn meiri hugdirfð hafði
um hana' í mjúkri lautu bjó.
Eitthvað fékk sá fjórði' að gera
– Eins og gengur, eins og gengur –
Eitthvað fékk sá fjórði' að gera.
Nú finnst mér vera kveðið nóg.
Því hvað hann gerði, ef vissir væna,
– Eins og gengur, eins og gengur –
Því hvað hann gerði, ef vissir væna,
þú vildir strax í berjamó.
Sigurður Þórarinsson
