Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Arídú - arídúradei
Arídú arídúradei,
arídú arídáa.
Sem kóngur ríkti hann
meður sóma’ og sann
eitt sumar á landinu bláa.
Sögu við ætlum að segja í kvöld
um sæfarann Jörund hinn knáa.
Sem kóngur ríkti hann
meður sóma og sann
eitt sumar á landinu bláa.
Í Danmörku fæddist og ólst hann upp,
en engan hlaut hann þar frama.
Sú kotungaþjóð með sín kúastóð
og kokhljóð var honum til ama.
Arídú arídúradei......
Á briggskipi ungur til Englands hann hélt,
og ölduna fagnandi steig hann,
því þrek í honum bjó og í saltan sjó
af sérstakri ánægju meig Hann.
Á kuggana marga hann munstraði sig,
og mörg urðu' hans ævintýri.
Hann kunni bráðum á allt sem kunna þarf á:
kompás, segl og stýri.
Arídú arídúradei......
Og loks varð hann kaptein með korða og hatt
á kaupfari glæstu og nýju.
Um höfin stór og breið nú lá hans leið
frá London til Ástarallalíu.
Já, fjöldamargt vann hann til frægðar sér,
en frægust varð Jörundar saga,
er hann komst á norðurslóð í kynni við þjóð
sem þar kúrði með galtóma maga.
Arídú arídúradei........
Jónas Árnason
