Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Ástardúett

(Jónas Árnason)

Heiðursstúlka heitir Gunna,
henni mun ég sífellt unna.
Hana leiði’ ég til brúðarbekks,
býð henni upp á kex,
ást hennar af því vex.
Svo ætlum við að eignast saman
anga Gunnur, þrjár og fjórar, fimm og sex.

Heiðurspiltur heitir Leifur,
ofurlitla ögn innskeifur.
Af því hann hefur augun blá,
sem eru svo góð að sjá,
skal hann mig fegna fáf
og eignast með mér litla Leifa
í það minnsta einn og tvo og þrjá.

Þegar ævi sígur sól
setjumst við í ruggustól,
í hendur höldumst við þá
og horfum montin á
meðan barnabörnin okkar
hlæja hátt og hoppa til og frá.

Jónas Árnason