Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Mærin frá Mexíkó
Eitt sinn kom til mín yngismær
með augun blíð sem ljómuðu, brún og skær.
Ég gerðist bráður og bað um hönd
já, biddu fyrir þér, mér héldu engin bönd.
Ég var ungur þá og hýr á brá
en ekki féll henni við mig þó.
Hún kvaðst ei vilja væskilsgrey
og ég varð að skilja’ hana eftir í Mexíkó.
Mætt hef ég síðan meyjafjöld
og margar buðu mér hjarta sitt, auð og völd.
Að orðum þeirra ég aðeins hló,
mér efst í huga var mærin frá Mexíkó.
Ég var ungur þá og hýr á brá
en ekki féll henni við mig þó.
Hún kvaðst ei vilja væskilsgrey
og ég varð að skilja’ hana eftir í Mexíkó.
Hvert sem fer ég um fjarlæg lönd,
hvert sem fleyið ber mig að sjávarströnd,
ætíð er lít ég í augun brún
heitt ég óska að þarna stæði hún.
Því mín æskuást mun aldrei mást,
enga gleði mér lífið bjó,
þar til ég fer um fjarlæg ver
og færi hana burtu frá Mexíkó.
Ólafur Gaukur
