Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Ástartöfrar
Oft við Amor hef ég átt í erjum
en aldrei hlotið slíkan skell.
Hann sínum örvum að mér beindi
og það var ég sem féll.
Oft við Amor hef ég átt í erjum
en hann mig töfrum hefur beitt.
Ástin á nú hug minn og aftur get ég
ekki minnsta viðnám veitt.
Ég féll að fótum þér
fyrirgefðu mér að ég skuli unna þér.
Ég yfirunnin alveg er
og ekkert getur bjargað mér
Oft við Amor hef ég átt í erjum
en aldrei hlotið slíkan skell.
Ástin á nú hug minn og ég er bundin
af því það var ég sem féll.
Karl Eiríksson
