Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Belamí
Ein lítil saga barst um bæinn fljótt,
þær berast húsa á milli furðu skjótt.
Í hverju horni hvíslað var á kvöldin
og horft í leyni á bak við gluggatjöldin.
Því eins og farfugl flýgur yfir sæ
úr fjarska kom hann hér í þennan bæ.
Og meyjar syngja sérhvern dag svo glaðar
þennan brag.
Engin er eins og þú, Belamí,
ég er hér sjáðu nú Belamí.
Hjartað ótt í barmi berst.
Brögðum þínum engin verst.
Komdu fljótt nú í nótt Belamí.
Enginn er eins og þú Belamí.
Engri tryggð lofar þú Belamí.
Áður en þú aftur ferð
eina nótt samt gefðu mér,
Belamí, Belamí, Belamí.
