Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Betlikerlingin

Hún hokin sat á tröppu, og hörkufrost var á,
og hnipraði sig saman uns í kuðung hún lá,
Og kræklóttar hendurnar titra til og frá,
um tötrana að fálma, sér velgju til að ná.

Og augað var svo sljótt sem þar slokknað hefði ljós
í stormbylnum tryllta um lífsins voða ós,
það hvarflaði glápandi, stefnulaust og stirt
og staðnæmdist við ekkert, svo örvæntingar myrkt.

Á enni sátu rákir og hrukka hrukku sleit.
Þær heljarrúnir sorgar sem enginn þýða veit.
Hver skýra kann frá prísund og plágum öllum þeim
sem píslarvottar gæfunnar líða hér í heim?

Hún var kannski perla sem, týnd í tímans haf,
var töpuð og glötuð svo enginn vissi af,
eða gimsteinn sem forðum var greyptur láns í baug.
En glerbrot var hún orðin í mannfélagsins haug.

Gestur Pálsson