Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Betra er á fjöllum

Mörg er sú plágan
er þjakar mann sem býr í borg
brjótandi niður hans sálu og kropp,
það er vafstur og amstur
og eilíft ráp um stræti og torg,
aldrei þar verður á jaginu stopp.

Betra er á fjöllum, konum og körlum
koma þau öllum að nýju í lag.
Vistin á öræfum eykur fjör og styrkir þrótt,
öræfin skulum við gista í nótt.

Vinnirðu á skrifstofu
daginn út og daginn inn,
doðranta fyllandi, stóra og smáa.
Hundleiður orðinn á öllu þessu auminginn,
upp skaltu á fjöllin, og þá muntu sjá:

að betra er á fjöllum o.s. frv....

Ef að þú kunningi, leiður ert á lífinu,
lungun öll biluð og taugarnar með.
Rífðu þig upp úr amstrinu og kífinu,
æddu til fjalla, þá geturðu séð:

Að betra er á fjöllum o.s.frv...

Sigurður Þórarinsson