Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Brestir og brak

Slæmar eru nefndirnar, þungt er þeirra hlass.
Samt við munum skjóta þeim, rebba fyrir rass.
Því við getum jólahaldi frestað fram í mars,
bara ef oss svo býður við að horfa...

Mér er sem ég heyri bresti og brak,
undan þeim kyngikrafti.
Er þú þar niðri á þingi tekur þeim tak,
þínum með þrumukjafti.
Já, dreifbýlingaflokkinn brýt ég á bak,
eins og fúaflak!
Já, gott ef ég ekki,
kofann og sprengi hið spanskgræna forna þak!

Já, mikið mun það gleðja Ægi minn Ó.
- létta' honum dimma daga -
er litlu börnin kaupa kí-lí-lí-ló,
af ávöxtum í sinn maga.
Já, kát svo mun ég syngja hæ-æ-æ-hó,
(og) líka ding-ding-dó,
þá allt verður uppselt,
þó mér finnist nú sjaldan að selst hafi alveg nóg!

Jónas Árnason