Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Ég þekkti eitt sinn konu
Ég þekkti eitt sinn konu sem gleypti mý
ég skil ekkert í því að gleypa mý
hún deyr kannski af því.
Ég þekkti eitt sinn konu sem gleypti fló
mér varð um og ó er hún gleypti fló...
Ég þekkti eitt sinn konu sem gleypti kött
það er alveg út í hött að gleypa kött...
Ég þekkti eitt sinn konu sem gleypti hund
hún hélt kjafti um stund er hún gleypti hund ...
Ég þekkti eitt sinn konu sem gleypti kú
og hana nú að gleypa kú...
Ég þekkti eitt sinn konu sem gleypti hest
hún dó fyrir rest.
