Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Ég vil fá mér kærustu

Ég vil fá mér kærustu sem allra allra fyrst
en ekki verður gott að finna hana.
Hún skal hafa kinnar eins og hrútaber á kvist
og hvarmaljósin björt sem demantana.
Og hún skal vera fallegust af öllum innanlands
og iðin við að spinna og léttan stíga dans
og hún skal kunna að haga sér hið besta.

Þær eru flestar góðar meðan unnustinn er nær,
en oss þær eru vissar til að blekkja.
En ég vil fá mér eina þá sem ei við öðrum hlær
sem elskar mig og bara mig vill þekkja.
Og hún skal líka finna bestu hugarró hjá mér
ef húsi mínu færi hún viðmótið með sér
og stóra fulla kistu bestu klæða.

Og ef ég svo í eina næ rétt alveg sem ég vil
þá óðara til brúðkaups skal ég feta
Og sveitafólk mitt veislu fær sem vantar ekkert til
en vín og hrokafylli sína éta.
Og þar skal vera dans og drykkja daga þrjá í röð
hin dýra ást oss gjörir í hjörtunum svo glöð
en til þess verður ofur litlu að eiða.