Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Það gerir ekkert til

(brot)

Ég vil spyrja ykkur öll:

eigum við að fara á fjöll,

í gömlu slitnu fjallafari?

Fyrir sig nú hver einn svari.

(Viðlag)

Það ég glaður vil,

það ég glaður vil,

þetta er glæfraspil,

en það gerir ekkert til.

Gamli Viboninn er valtur,

vondur í stýri og hálfhaltur,

stjórnlaus hrekkur hann úr gíri.

Hver vill setjast undir stýri?

Það ég glaður... o.s.frv.

Þröngt er hér og þeygi gaman,

þótt við sitjum pressuð saman

eins og kássa´ í krökkri tunnu.

Hver vill sitja undir Gunnu?

Það ég glaður... o.s.frv.

Á veðurspánni vondu´að trúa,

við í snatri aftur snúa

eða halda á hættuslóðir?

Hvað segið þið hálsar góðir?

Það ég glaður... o.s.frv.

Er bíllinn festist út í á

yfirgefa´hann kvenfólk má,

konuleggir bólgna og blána.

Hver vill bera þær yfir ána?

Það ég glaður... o.s.frv.

Auminginn hann Siggi sæti,

særðist illa á vinstra fæti.

Vill ekki ein af vorum konum

verða eftir og hjúkra honum?

Jú, það glöð ég vil... o.s.frv.