Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Þegar hnígur húm að þorra
Þegar hnígur húm að Þorra
Þegar hnígur húm að Þorra,
oft ég hygg til feðra vorra,
:.:og þá fyrst og fremst til Snorra,
sem framdi Háttatal:.:
Áður sat hann skýr að Skúla,
og þar skálda lét sinn túla,
:.:bæði um hann og Hákon fúla,
sem hirti frelsi vort:.:
Fögur knáttu gullker geiga,
sem að gaman væri að eiga,
:.:full af safa sætra veiga,
er sveif á alla drótt:.:
Snorri kallinn kunni að svalla,
og að kæta rekka snjalla,
:.:þegar húmi tók að halla,
í höllu Skúla jarls:.:
Og hann þoldi að þreyta bögur
og að þylja fornar sögur,
:.:já, allt fram til klukkan fjögur,
þá fór hann í sitt ból:.:
Samt frá hilmi heim hann stundar
út til helgrar fósturgrundar
:.:og sitt skip að búa skundar
það skáldmæringa val:.:
Þá kom bann frá herra Hákon,
sem var harður eins og Drákon.
:.:"Ég er hákon -," sagði Hákon,
"ég er hákonservatív":.:
„Ég vil út! Ég vil út að bragði!
Ég vil út“, þá kempan sagði.
:.:„Ég vil út,“ og út hann lagði
til Íslands sama dag.:.:
Af því beið hann bana síðar,
fyrir buðlungs vélar stríðar.
:.:Síðan gráta hrímgar hlíðar
og holt um Borgarfjörð.:.:
Hannes Hafstein – Björn M. Ólsen
