Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Einhversstaðar einhverntíma aftur
Einhversstaðar einhverntíma aftur
liggur leið þín um veginn til mín
og þú segir: „Ég saknaði þín,
ég saknaði þín“.
Kyrrlátt kvöldið hvíslar ástarorðum
út í buskann, hver heyrir þau nú.
Út úr lífi mínu labbaðir þú,
labbaðir þú.
En ég nenni ekki að hanga hér
þótt hugur dvelji oft hjá þér.
Lífið bíður líka' eftir mér.
Það er alveg nóg af sorg og sút,
svo ég ætla eitthvað út
að finna einhvern félagsskap,
því hik þú veist er sama og tap.
Nú er bráðum tími til að þegja,
því að ósagt nú á ég svo fátt.
En ég sendi þér kveðju í sátt,
kveðju í sátt.
En ég nenni ekki að hanga hér
þótt hugur dvelji oft hjá þér.
Lífið bíður líka' eftir mér.
Það er alveg nóg af sorg og sút,
svo ég ætla eitthvað út
að finna einhvern félagsskap,
því hik þú veist er sama og tap.
Einhversstaðar einhverntíma aftur
liggur leið þín um veginn til mín
og þú segir: Ég saknaði þín,
ég saknaði þín.
Magnús Eiríksson
