Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Raunasaga

Ég er seinheppinn maður, það sést best á því

hve sjaldan ég dett og fer á fyllerí.

Þótt aldrei gerði ég öðrum neitt mein

ég alltaf er tekinn og mér stungið í stein.

Og kvenfólkið leikur mig líka svo grátt,

að líf mitt er dapurt, þá fer ég í hátt.

Ef ætla ég skvísu að húkka með heim,

hún hendist burtu og stundum með tveim.

Ef ég reyni með valdi að verja minn feng

og vaða á strákana og slá þá í keng,

þá ráðast þeir á mig og rota eins og mink,

mér rétta á kjammann eitt spítalavink.

Á spítölum kvelur mig læknanna lið

með lamstri og sprautum, svo ég þoli ekki við.

Og því er það svo að ég sagt get með sann,

að síst eru þeir fyrir slasaðan mann.

En verra er ekkert í veröldu þó,

en að vera á stað, þar sem munngát er nóg

að húka við bar eins og staðfastur staur

og stara á tómt glasið og eiga ekki aur.