Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Faðmur dalsins
Hér í dalnum er draumfagurt vor
lóan syngur og lækurinn hlær
og hér á ég svo ótalmörg spor
er um vanga lék svalandi blær.
Hér er ilmur úr gróandi jörð
geislar leika um lautir og börð.
Lóan syngur og lækurinn hlær
Hér á hólnum stóð hjartahlýr bær.
Langt er nú síðan ég hoppaði’ og hló
og hentist um lautir og mó.
Enn syngur lóan og lækurinn hlær,
en horfinn er hjartahlýr bær.
Já, svo líða árin fjær og fjær.
Hvar eru sporin mín frá því í gær?
Edda Vilhelmsdóttir frá Laugardal
