Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Ó, pabbi minn

Ó pabbi minn, hve undursamleg ást þín var.
Ó pabbi minn, þú ávallt tókst mitt svar.
Aldrei var neinn, svo ástúðlegur eins og þú.
Ó pabbi minn, þú ætíð skildir allt.

Liðin er tíð, er leiddir þú mig lítið barn.
Brosandi blítt, þú breyttir sorg í gleði.

Ó pabbi minn, ég dáði þína léttu lund.
Leikandi kátt, þú lékst þér á þinn hátt.
Ó pabbi minn, hve undursamleg ást þín var.
Æskunnar ómar ylja mér í dag.

Þorsteinn Sveinsson

Kvöldljóð

Sofðu litla barnið mitt og láttu vel þig dreyma,

þá líður hugur þinn um undraheima,

þar gerast ýmsir hlutir sem er gaman að

og gætu’ ei hér í heimi átt sér stað.

En þegar höndin svefnsins hnígur á

nýr heimur opnast, fagurt er að sjá.

Ólafur Gaukur Þórhallsson