Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Faðmur föðurins
Faðmur föðurins opinn er
opinn bíður hann eftir þér,
því hann þráir að faðma þig,
gefa þér sinn himneska frið.
Faðmur föðurins opinn er
hann vill hafa þig nærri sér
fá að leiða þig sérhvern dag
snúa deginum þér í hag.
Ekki láta það framhjá þér fara því þú
veist ekki hvernig morgundagurinn lítur út.
Kannske er þetta einmitt tækifærið þitt,
dagurinn sem Guð snertir hjarta þitt.
Faðmur föðurins opinn er,
hann vill hafa þig nærri sér,
fá að leiða þig sérhvern dag,
snúa deginum þér í hag.
Þú einn getur ákveðið það
hvernig líf þitt í rauninni er
hvort þú ráfir einn um nætur
eða dveljir þar sem birta Guðs er.
Faðmur föðurins opinn er
opinn bíður hann eftir þér,
því hann þráir að faðma þig,
gefa þér sinn himneska frið.
