Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Fallinn

Fallinn með fjóra komma níu
eitt skelfilega skiptið enn
fallinn útskúfaður maður
er ég ekki eins og aðrir menn.

Ég er að horfa út um gluggann minn
á alla þá sem að fengu fimm
og ég les og ég les í sól og sumaryl
því að ég verð að ná í næsta sinn.

Pabbi, bandsjóðandi vitlaus
hann vill ég verði númer eitt
mamma sagði að það væri ekki að marka
ég gæti hvort sem er ekki neitt.

Ég er að horfa út um gluggann minn
á alla þá sem að fengu fimm
og ég veit og ég sé að þau gera gys að mér
því ég er fallinn í fimmta sinn.

Ég er að horfa út um gluggann minn
á alla þá sem að fengu fimm
og ég les og ég les í sól og sumaryl
því að ég verð að ná í næsta sinn.

Fallinn með fjóra komma níu
eitt skelfilega skiptið enn
fallinn útskúfaður maður
er ég ekki eins og aðrir menn.