Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Fátt er svo með öllu illt

Fátt er svo með öllu illt að ei boði gott
það má finna út úr öllu ánægjuvott.
Þótt suma langi' að detta í lífsins lukkupott
er sagt að fátt sé svo með öllu illt að ei boði gott.

Þótt ástarsagan oft fari illa með menn
Þeir ættu' að vita að ekki er öll von úti enn.
Þeim bjóðast miljón meyjar og þær margar flott
því að fátt er svo með öllu illt að ei boði gott.

Fátt er svo með öllu illt.....

Ekki þótti Adam gamla eplið sem best
af syndum karlsins súpum við nú seyðið víst flest
En eplið lauk upp augum hans hve Eva var flott
sem sagt, að fátt er svo með öllu illt að ei boði gott.

Fátt er svo með öllu illt...