Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Meðan döggin

Meðan döggin af munni þínum
á mínum vörum þornar ei,
vil ég nú koma kvæðum mínum
í keltu þína, hjartans mey.
Úr keltunni í augun, augum frá
inn í hjartað þau læðast þá.

Hvað eiga þau nú þar að segja?
Það, að ég vilji dag og nótt
lifa hjá þér og líka deyja,
mig langi að vaka og sofa rótt,
hjartað mitt, innst í hjarta þér,
heimurinn þar sem gleymir mér.

Páll Ólafsson