Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Flagarabragur

Ég kátur stunda kvennafar,
og kann að súpa úr glasi,
með hlátri slepp ég hér og þar,
við hinu og öðru þrasi.
Mig konur vildu í kirkju fá
og koma á mig spotta,
en hljóður þeim ég læddist frá
og lét mér nægja að glotta.

Einn tveir nú allir gólum saman,
allir þeir sem hafa af skál,
og kvennafari gaman,
gráti, væli’ og grenjutón
ei gegni nokkur kjaftur,
syngjum dátt og höfum hátt,
helltu í glasið aftur.

Og ein var það sem elda kunni
allra handa steikur,
og ég sem er í maga og munni,
mjög á svelli veikur.
í veislu nítján daga naut,
því nægur reyndist forðinn,
en síðan burtu saddur braut
og selspikaður orðinn.

Einn tveir......

Og þannig hef ég marga meyju,
margvíslega svikið
og ég veit lengra en nær mitt nef,
sem nær þó skollans mikið.
og alltaf skal ég elska þær
af öllu mínu hjarta.
Og skil ei þó ég elski tvær,
að önnur þurfi að kvarta.

Einn tveir...