Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Flaskan mín fríð
Flaskan mín fríð, flaskan mín fríð,
fer þér ekki bráðum að ljúka,
mér leiðist allt geim, nú langar mig heim,
en líklega verð ég að strjúka.
Að fara meðan flaskan er til
finnst mér þó dálítið slakt,
ef get ég ekki gert henni skil
hvað gæti fólk um mig sagt.
Já, fyrir viku fór ég á ball,
svo fór ég þaðan í hús,
þar upphófst þegar æðislegt skrall
og allir höfðu nóg bús.
Flaskan mín fríð…..
Í fyrrakvöld hinn fyrsti
sem steinn féll í andvana dá,
og síðan létust þeir einn eftir einn
uns ei var lífsmark að sjá.
Þeir supu drjúgt og sofa nú vært
en supu þó ekki allt,
því ein er hér með innihald tært
og æpir stöðugt: ,,þú skalt”
Hún tæmast skal og troða sitt skeið,
þótt til þess verði ég einn,
en verst er það, að líklega um leið
ligg ég sjálfur sem steinn.
Flaskan mín fríð…..
Jónas Friðrik
