Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Fugladansinn
Bí,bí, bí og dirrindí
fuglinn flýgur upp í ský
fimur dillar stélinu.
Úti í snjónum tístir hátt
og hann flögrar hátt og lágt
undan hríðarélinu.
Ekkert gogginn í hann fær
ótt og títt hann vængjum slær
og hann sperrir lítið stél.
Fá hann mola vill í nef,
flögrar svangur um með kvef
flýr í krókaleiðum él.
Dönsum fugladansinn,
dýrum gefum brauð.
Látum fuglafansinn
á frera landsins
ekki líða nauð.
Öndin segir bra bra bra,
og hún hreyfir vængina
og með stélinu hún rær.
Upp á gátt hún opnar nef
er með kuldaroll og kvef,
engan mat úr vatni fær.
Kallar hún á krakka hér;
Komið nú að hita mér
ég bara get ei fyrir ís
Ef í gogginn ekkert fæ
áfram bara vængjum slæ
úti í kuldanum ég frýs.
Dönsum fugladansinn,
dýrum gefum brauð.
Látum fuglafansinn
á frera landsins
ekki líða nauð.
Ómar Ragnarsson
