Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Gættu að þér litla auga
:,: Gættu að þér litla auga hvað þú sérð:,:
því að Guð á himnum há
horfir litlu börnin á.
Gættu að þér litla auga hvað þú sérð.
:,:Gættu að þér litla eyra hvað þú heyrir:,:,
því að Guð.........
:,:Gættu að þér litli munnur hvað þú talar:,:f
því að Guð.........
:,: Gættu að þér litla hönd hvað þú gerir:,:
því að Guð.........
:,:Gættu að þér litli fótur hvar þú stígur:,:
því að Guð......
