Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Gamla gatan

Ó, gamla gatan mín,
ég glaður vitja þín,
og horfnar stundir heilsa mér.
Hér gekk ég gullin spor,
mín glöðu æskuvor
sem liðu burt í leik hjá þér.

Í sól og sumaryl,
hve sælt að vera til,
við þekktum hvorki boð né bann,
en kveiktum ástareld
sem öll hin rauðu kveld
í ungum hjörtum okkar brann.

Dagarnir liðu með draumsins þyt,
dóu mín sumarblóm.
Nú geymi ég þeirra ljós og lit
sem lifandi helgidóm.

Það berast ómar inn
ég opna gluggann minn
og um mig leikur andi hlýr
því æskan fram hjá fer,
til fundar hraðar sér
að yrkja lífs síns ævintýr.

Ási í Bæ