Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Góðmennskan

Eitt sinn var ég ógiftur
og eitt sinn var ég frjáls
og við áhyggjurnar laus
og allt gekk mér í vil,
þar til örlaganna spil
mér annað hlutverk kaus.
Það var eitt kvöld um vetrartíð
í versta kulda og hríð,
að ég góðmennskunnar galt
því ég gerði þetta allt,
vegna þess hvað stúlkukindinni var kalt.

Ég heim gekk þetta kvöld
og við húsdyr mínar stóð
eitt háskalega þunnklætt fljóð
með kuldabláa kinn
svo ég kippti píu inn
og kynda hugðist gamla ofninn minn.
En hvernig á að hlýja kropp,
þegar helvítis ofninn segir stopp.
Ég góðmennskunnar galt
því ég gerði þetta allt,
vegna þess hvað stúlkukindinni var kalt.

Nú búið er mitt frelsi
ég basla hér með víf,
á brauðstritinu aldrei hlé.
Það tjóar ekkert kíf,
né mitt tal um sjálfstætt líf,
með tvíburana sinn á hvoru kné.
Á kvöldin aldrei kemst ég út
en kúri heima í sút.
Ég góðmennskunnar galt
því ég gerði þetta allt,
vegna þess hvað stúlkukindinni var kalt.

Sigurður Þórarinsson