Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Guð gaf mér eyra

:/:Guð gaf mér eyra svo nú má ég heyra,
Guð gaf mér auga svo nú má ég sjá:/:
Guð gaf mér hönd svo ég gjört gæti fleira,
Guð gaf mér fætur sem nú stend ég á.
Guð gaf mér eyra svo nú má ég heyra,
Guð gaf mér auga svo nú má ég sjá.

:/:Guð gaf mér höfuð sem hugsar og dreymir,
hátt sem að lyftist að vísdómsins lind:/:
Guð gaf mér hjarta, já hjarta sem geymir
hreina og geislandi frelsarans mynd.
Guð gaf mér höfuð sem hugsar og dreymir,
hátt sem að lyftist að vísdómsins lind.

Höf. ókunnur