Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Heim í Búðardal
Er ég kem heim í Búðardal
bíður mín brúðar val,
og ég veit, það verður svaka partý.
Býð ég öllum úr sveitinni,
langömmu heillinni,
það mun verða veislunni margt í.
Ég er lukkunnar pamfíll svei mér þá
þó ég hafi ekki víða farið.
Ég er umvafinn kvenfólki
það get ég svarið,
og minna gagn gera má.
Þegar vann ég í Sigöldu,
meyjarnar mig völdu,
til þess að stjórna sínum draumum.
En nú fer ég til Búðardals,
beint heim til kellu og karls,
sem af gleði tárast í taumum.
Því nú grætt hef ég meira' en mér finnst nóg,
heimasætur gefa mér hýrt auga,
og ég veit að með mér þær vilja setja upp bauga,
svo verður mér um og ó.
Er ég kem heim í Búðardal
bíður mín brúðar val,
og ég veit, það verður svaka partý.
Býð ég öllum úr sveitinni,
langömmu heillinni,
það mun verða veislunni margt í.
Þorsteinn Eggertsson
