Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Hann fylgir mér

Er að morgni um garðinn ég geng,
meðan grasið af dögginni ljómar,
sýnir Kristur mér hvernig allt það er
sem ákall, en fagnandi hljómar.

Og hann fylgir mér, já hann fylgir mér
og fögnuðinn veitir mér sinn.
Betri gjöf en þá enginn gefa má,
enga gleði ég meiri finn.

Og er golan í garðinum hlær,
er glaðlega fuglarnir syngja,
hvert andartak fyllist orðum hans
og angandi blómklukkur klingja.

Og hann fylgir mér, já hann fylgir mér
og fögnuðinn veitir mér sinn.
Betri gjöf en þá enginn gefa má,
enga gleði ég meiri finn.