Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Hann Stubbur litli labbar

Hann Stubbur litli labbar
með landpóstinum yfir fjöll.
Hann langaði að líta
á landsins stærstu tröll.

Svo fór hann upp á fjöllin
og fékk að líta heljartröll,
en fór á burt sem skjótast
og fannst þau lítil öll.

Þá sá hann sjóinn bláa
og sentist niður snarbrött fjöll.
Er leit hann sig í lygnu
þá loksins sá hann tröll.

Höfundur ókunnur.