Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Hríseyjar-Marta
Hún Hríseyjar-Marta
með hárið sitt svarta
var fræg fyrir kátínu, forðum á síld.
Og það hressti okkur alla
að heyra' hana kalla:
„Hæ tunnu! hæ tunnu! Hæ salt, meira salt!“
Hún Hríseyjar-Marta,
aldrei heyrðist hún kvarta
þó hún fengi ekki hænublund nótt eftir nótt.
Og það hressti okkur alla
að heyra hana kalla:
„Hæ tunnu! hæ tunnu! Hæ salt, meira salt!“
Hún Hríseyjar-Marta
með hárið sitt svarta
hún veiktist af hósta eitt haustið og dó.
Og það hryggði okkur alla
er hún hætti að kalla:
„Hæ tunnu! hæ tunnu! Hæ salt, meira salt!“
Hún Hríseyjar-Marta
með hárið sitt svarta
hún gat ekki legið í gröfinni kjur.
Og það hressti okkur alla
að heyra' hana kalla:
„Hæ tunnu! hæ tunnu! Hæ salt, meira salt!“
Þó að síldin sé flúin
og öll söltun sé búin
stendur Marta á planinu, nótt eftir nótt.
Og það hressir enn alla
að heyra' hana kalla:
„Hæ tunnu! hæ tunnu! Hæ salt, meira salt!“
Jónas Árnason
