Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Hún hring minn ber
Hún hring minn ber á hendi sér
og heill úr augum skín,
hún sýnir þér og sannar mér
að hún sé stúlkan mín.
Ég hringinn dró á hönd svo fagurgerða
og henni gaf ég nafnið Baugalín.
Þann tryggðarhring, gullna táknið
um hamingju brunna
sem tæmast munu ei
eða hrynja til grunna.
Hún hét að bera’ hann sem og heitast mér og unna.
Ég glaður syng, því hún ber minn hring.
Baldur Pálmason
